Sport

Bergrós aftur best í heimi og fjögur frá Ís­landi í undan­úr­slitum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bergrós Björnsdóttir stóð sig mjög vel og fær nú í fyrsta sinn að keppa á undanúrslitamóti fullorðinna.
Bergrós Björnsdóttir stóð sig mjög vel og fær nú í fyrsta sinn að keppa á undanúrslitamóti fullorðinna. @bergrosbjornsdottir

Fjórðungsúrslit undankeppni heimsleikanna í CrossFit eru að baki og Ísland mun eiga fjóra keppendur á undanúrslitamótinu, einn karl og þrjá konur.

Það er ekki endanlega búið að staðfesta lokastöðuna en það verður ekki gert fyrr en eftir fimm daga. Það er hins vegar mjög ólíklegt að þetta breytist eitthvað úr þessu.

Björgvin Karl Guðmundsson náði langbestum árangri íslenska CrossFit fólksins. Hann varð þriðji í Evrópu og í sjöunda sæti á heimsvísu.

Björgvin Karl Guðmundsson.@bk_gudmundsson

Björgvin Karl er líka eini íslenski karlinn sem komst áfram í undanúrslitin en næsti íslenski keppandi var Rökkvi Guðnason sem endaði í 143. sæti í Evrópu.

Bergur Sverrisson varð síðan 166. sæti og Ægir Björn Gunnsteinsson endaði í 184. sæti í Evrópu. Ísland átti sem sagt fjóra karla á topp tvö hundruð í Evrópu.

Þrjár íslenskar konur tryggðu sér sæti í undanúrslitamótinu með því að verða meðal fjörutíu efstu í Evrópu.

Sara Sigmundsdóttir náði besta árangrinum með því að verða í 23. sæti en Þuríður Erla Helgadóttir kom skammt á eftir í 25. sæti. Hin unga og stórefnilega Bergrós Björnsdóttir náði síðan 29. sæti og er því að leiðinni á sitt fyrsta undanúrslitamót.

Þegar er litið á stöðuna á heimsvísu þá varð Sara númer fjörutíu, Þuríður Erla númer 46 og Bergrós númer 51.

Efstu konur í heimi í flokki sextán til sautján ára.@morningchalkup

Bergrós er aðeins sautján ára gömul og hún er efst allra í heiminum í hennar aldursflokki. Alveg eins og í opna hlutanum þá náði enginn á hennar aldri betri árangri. Önnur á eftir Selfyssingnum varð Írinn Lucy McGonigle og eftir henni koma síðan fjórar bandarískar stelpur.

Guðbjörg Valdimarsdóttir var ekki langt frá þessu en hún endaði í 55. sæti og Steinunn Anna Svansdóttir varð í 94. sæti.

Hallgerður María Friðriksdóttir (143. sæti), Hjördís Óskarsdóttir (168. sæti), Stefanía Júlíusdóttir (178. sæti) og Alma Káradóttir (189. sæti) náðu líka allar að verða meðal þeirra tvö hundruð efstu í Evrópu.

Ísland átti því þrettán fulltrúa á topp tvö hundruð, fjóra karla og níu konur.

Undanúrslitamót Evrópu fer fram í Lyon í Frakklandi frá 17. til 19. maí. Hingað til hafa keppendur skilað æfingum sínum í gegnum netið en nú keppa þau hlið við hlið um sæti á heimsleikunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×